Réttir á Norðurlandi vestra
Haustið er á næsta leiti og þá hefjast uppskerustörfin í sauðfjárræktinni með göngum, réttum og sláturtíð. Þessir þjóðlegu og spennandi viðburðir munu setja svip sinn á næstu vikurnar um allan landshlutann.
Fyrstu fjárréttirnar verða í Rugludalsrétt í Blöndudal um næstu helgi, laugardaginn 29. ágúst, en stóðréttirnar hefjast síðar, þær fyrstu í Staðarrétt laugardaginn 19. september.
Eftirfarandi er réttardagskráin á Norðurlandi vestra:
Austur Húnavatnssýsla:
Auðkúlurétt við Svínavatn
Fjárréttir laugardaginn 12. sept., hefst kl. 08:00.
Stóðréttir laugardaginn 26. sept., hefst kl. 16:00.
Beinakeldurétt
Fjárréttir þriðjudaginn 15. sept., hefst kl. 09:00.
Fellsrétt
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Fossárrétt Skagabyggð
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Hlíðarrétt
Fjárréttir laugardaginn 5. sept., hefst kl. 16:00.
Kjalarlandsrétt Skagabyggð
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Rugludalsrétt
Fjárréttir laugardaginn 29. ágúst, hefst kl. 16:00.
Skrapatungurétt
Fjárréttir sunnudaginn 6. sept.
Stóðréttir sunnudaginn 20. sept.
Stafnsrétt
Fjárréttir laugardaginn 12. sept., hefst kl. 08:30.
Sveinsstaðarétt
Fjárréttir sunnudaginn 13. sept., hefst kl. 10:00.
Undirfellsrétt
Fjárréttir föstudaginn og laugardaginn 11. – 12. sept., hefst kl. 12:00 og kl. 9:00.
Stóðréttir laugardaginn 26. sept., hefst kl. 09:00.
Skagafjörður:
Kleifnarétt
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Hraunarétt
Fjárréttir þriðjudaginn 8. sept.
Héðinsfjarðarrétt
Fjárréttir föstudaginn 18. sept.
Siglufjarðarrétt
Fjárréttir laugardaginn 19. sept.
Reykjarrétt í Ólafsfirði
Fjárréttir miðv. og fim. 9. og 10. sept. Fljótaféð réttað í Stíflurétt föstud. 11. sept.
Stíflurétt Fljótum
Fjárréttir föstudaginn 11. sept.
Holtsrétt Fljótum
Fjárréttir laugardaginn 12. september.
Hraunrétt Fljótum
Fjárréttir fimmtudaginn 10. september.
Flókadalsrétt Flókadal
Fjárréttir laugardaginn 12. sept.
Stóðréttir laugardaginn 3. okt.
Skálárrétt Hrollleifsdal
Fjárréttir laugardaginn 12. sept.
Unadalsrétt Hofsósi
Fjárréttir laugardaginn 5. sept. og 12. sept.
Stóðréttir föstudaginn 25. sept.
Deildardalsrétt Deildardal
Fjárréttir laugardaginn 12. sept.
Stóðréttir föstudaginn 25. sept.
Laufskálarétt
Fjárréttir sunnudaginn 13. sept.
Stóðréttir laugardaginn 26. sept.
Selnesrétt Skaga
Fjárréttir laugardaginn 5.sept. og 19. sept.
Skarðarétt Gönguskörðum
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Stóðréttir laugardaginn 19. sept.
Sauðárkróksrétt
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Staðarrétt
Fjárréttir sunnudaginn 6. sept.
Stóðréttir laugardaginn 19. sept.
Stafnsrétt Svartárdal
Fjárréttir laugardaginn 12. sept.
Mælifellsrétt
Fjárréttir sunnudaginn 13. sept.
Hlíðarrétt Vesturdal
Fjárréttir sunnudaginn 20. sept.
Hofsrétt Vesturdal
Fjárréttir laugardaginn 19. sept.
Hreppaskil, mánudaginn 5. okt.
Húnaþing vestra:
Hamarsrétt á Vatnsnesi
Fjárréttir laugardaginn 12. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði
Fjárréttir Laugardaginn 5. sept., hefst að morgni.
Hvalsárrétt í Hrútafirði
Fjárréttir laugardaginn 19. sept.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði
Fjárréttir laugardaginn 5. sept.
Valdarásrétt í Fitjárdal
Fjárréttir föstudaginn 11. sept., hefst kl. 9:00
Víðidalstungurétt í Víðidal
Fjárréttir laugardaginn 12. sept., hefst kl. 10:00.
Stóðréttir laugardaginn 3. okt., hefst kl. 10:00.
Þverárrétt í Vesturhópi
Fjárréttir laugardaginn 12. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi
Stóðréttir laugardaginn 26. sept. kl. 12:30.