Réttir í Húnavatnssýslum

Frá Auðkúlurétt í Húnavatnshreppi.
Frá Auðkúlurétt í Húnavatnshreppi.

Haustið er á næsta leiti og þá hefjast uppskerustörfin í sauðfjárræktinni með göngum, réttum og sláturtíð. Þessir spennandi og þjóðlegu viðburðir munu setja svip sinn á næstu vikurnar um land allt. 

Húni.is hefur tekið saman réttardagskrána í Húnavatnssýslum en í síðustu viku voru birtar á vef Feykis dagssetningar á fjár- og stóðrétta í í Skagafirði

Helstu fjár- og stóðréttir í Húnavatnssýslum haustið 2016 eru eftirfarandi:

Fjárréttir:

Laugardagurinn 3. september:

  • Hrútatungurétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
  • Miðfjarðarrétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
  • Rugludalsrétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.

Föstudagurinn 9. september:

  • Valdarásrétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
  • Undirfellsrétt, A-Hún., fyrri réttardagur, hefst klukkan 12:00.

Laugardagurinn 10. september:

  • Undirfellsrétt, A-Hún., seinni réttardagur, hefst klukkan 9:00.
  • Auðkúlurétt, A-Hún., hefst klukkan 08:00.
  • Stafnsrétt, A-Hún., hefst klukkan 08:30.
  • Víðidalstungurétt, V-Hún., hefst klukkan 10:00.
  • Hamarsrétt, V-Hún., hefst klukkan 10:00 
  • Hlíðarrétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.
  • Þverárrétt, V-Hún. 

Sunnudagurinn 11. september: 

  • Skrapatungurétt, A-Hún., hefst klukkan 10:00
  • Sveinsstaðarétt, A-Hún., hefst klukkan 10:00.
  • Þriðjudagurinn 13. september:
  • Beinakeldurétt, A-Hún., hefst klukkan 09:00.
  • Laugardaginn 17. september:
  • Hvalsárrétt, V-Hún.  

Stóðréttir:

Laugardagurinn 3. september:

  • Miðfjarðarrétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
  • Sunnudagurinn 18. september:
  • Skrapatungurétt, A-Hún., hefst klukkan 09:00.
  • Hlíðarrétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.

Laugardagurinn 24. september:

  • Undirfellsrétt, A-Hún., hefst klukkan 9:00.
  • Þverárrétt í Vesturhópi.
  • Auðkúlurétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.

Laugardagurinn 1. október:

  • Víðidalstungurétt, V-Hún., hefst klukkan 10:00.

Upptalningin er ekki tæmandi og birt með fyrirvara um villur, allar ábendingar eru vel þegnar. 

Feykir hvetur lesendur til að senda myndir úr réttum, til birtingar í blaðinu eða á vefnum. Hægt er að senda þær á netfangið feykir@feykir.is og nauðsynlegt að fram komi úr hvaða réttum myndirnar eru og hver myndatökumaður er.

Fleiri fréttir