Réttir og göngur hefjast um helgina
Réttir og göngur hefjast um helgina með tilheyrandi stemmingu. Munu réttirnar verða á morgun, laugardaginn 3. september.
Í Skagafirði fara fjárréttir fram í Kleifarrétt í Fljótum. Í Húnaþingi vestra verður réttað tveimur réttum, í Miðfjarðarrétt þar sem stóðréttir verða kl. 9 um morguninn en svo fjárrétt eftir hádegið.
Annað kvöld verður svo réttarball í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka, þar sem Matti Matt stígur á stokk ásamt hljómsveitinni Von.
Einnig verður fjárrétt í Hrútatungurétt. Gunnar Sæmundsson bóndi á Stað í Hrútafirði, og réttarstjóri í Hrútatungurétt, sagði í viðtali morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, að þokan sem væri á svæðinu setti strik í reikningin.
Að sögn Gunnars var hægviðri í morgun en þoka þegar dró til fjalla. „Gangnamenn sitja kyrrir í skála vegna þoku. Það verður einhver bið en vonandi léttir til fljótlega.“
Hluti af gangnamönnum hóf smölun í gærmorgun og svo fóru fleiri af stað í gærkvöldi. En Gunnar sagði ekki gott að segja hvort smölun næði að klárast á tilsettum tíma.
Viðtalið í heild sinni má nálgast hér.