Réttlætisrúta Dögunar rúllar inn í Norðvesturkjördæmi

Í dag kveður Réttlætisrútu Dögunar Eyjafjörðinn og þar með Norðausturkjördæmi og rúllar inn í Norðvesturkjördæmi, segir í fréttatilkynningu frá Dögun. Á morgun hefst dagur Réttlætisrútunnar í sundlauginni á Hofsósi kl. 8 og verður á ferðinni um Skagafjörðinn á morgun, miðvikudag. Á fimmtudag heimsækir rútan svo Húnavatnssýslur.

Eins og fyrr er bílstjóri rútunnar Friggi Jó en með í för er Guðrún Dadda Ásmundardóttir oddviti Dögunar í Norðvesturkjördæmi. Væntanlega slást svo fleiri frambjóðendur með í förina, segir loks í tilkynningu.

Fleiri fréttir