Rífandi stemmning á Blönduósi

Nóg er um að vera yfir páskahelgina á Blönduósi og óhætt að gera ráð fyrir fjöri í bænum næstu tvö kvöld. Trúbadorarnir Friðrik, Pálmi og Höskuldur að mæta á Árbakkann í kvöld, föstudagskvöldið 6. apríl, með rífandi stemmningu og spila frá kl. 22 til kl. 3 eftir miðnætti, samkvæmt Húna.is.

Á morgun, laugardagskvöldið 7. apríl, stígur hljómsveitin Í svörtum fötum á svið í Félagsheimilinu á Blönduósi og þar munu þeir spila á dansleik fram eftir nóttu. Dansleikurinn hefst klukkan 23.

Fleiri fréttir