Rigning eða slydda með köflum

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan og norðaustan 8-15 og rigning eða slydda með köflum á annesjum, annars hægari og þurrt. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Norðaustan og austan 10-18 m/s, hvassast SA-lands og á annesjum NV-til. Víða rigning og slydda til fjalla, en úrkomulítið NV-lands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast SV-lands.

Á sunnudag:

Austlæg átt, 5-10 m/s, en norðaustan 10-15 á Vestfjörðum. Rigning með köflum, en þurrt að kalla á N-landi. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast syðst.

Á mánudag:

Norðaustanhvassviðri og slydda eða rigning NV-til, en mun hægari og skúrir eða slydduél í öðrum landshlutum. Heldur kólnandi veður.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir norðanátt með slyddu eða snjókomu N-lands, en bjartviðri syðra. Svalt í veðri.

Á miðvikudag:

Snýst líklega í suðaustanátt með rigningu og hlýnar heldur.

Fleiri fréttir