Rigning með köflum í dag

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðvestan og vestan 3-8 á morgun og rigning með köflum. Styttir að mestu upp í kvöld og léttir heldur til á morgun. Hiti 4 til 10 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað N-til á landinu og hiti 2 til 6 stig. Bjart með köflum annars staðar og hiti 6 til 12 stig að deginum.

Á sunnudag:
Norðaustan 5-13 m/s og lítilsháttar skúrir eða él, en þurrt og bjart á S- og V-landi. Kólnandi veður.

Á mánudag:
Austan- og norðaustanátt, víða 5-10 m/s. Yfirleitt bjart veður um landið V-vert, en stöku él eða skúrir A-til fyrripartinn, en SV-lands um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki, en að 6 stigum yfir daginn á S- og V-landi.

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir austlæga átt. Bjartviðri N-lands, skýjað og þurrt að kalla með A-ströndinni, en stöku skúrir SV-til. Hiti breytist lítið.

Fleiri fréttir