Ríkið stendur sig ekki í að fjármagna málefni fatlaðs fólks

Byggðarráð Skagafjarðar lýsti á fundi sínum í gær yfir miklum áhyggjum af sívaxandi halla á rekstri málaflokks fatlaðs fólks. Fram kemur í fundargerð að ljóst sé að sveitarfélögum var falin mikil ábyrgð með tilfærslu málaflokksins frá ríkinu til sveitarfélaga árið 2011 og áskoranir í þjónustunni hafi orðið enn stærri með lagabreytingum árið 2018.

„Lögbundið framlag til sveitarfélaganna og fjárframlög Jöfnunarsjóðs standa engan veginn undir rekstri málaflokksins og hefur svo verið um nokkurra ára skeið. Nýleg greining starfshóps ráðherra á kostnaðarþróun í þjónustu við fatlað fólk árin 2018-2020 leiðir í ljós að rekstrarniðurstaða sveitarfélaga landsins vegna málaflokksins var neikvæð um 8,9 milljarða króna og hafði þá þrefaldast á þremur árum frá 2018. Ljóst er að hallinn á árinu 2021 var umtalsvert meiri,“ segir í  fundargerð ráðsins sem fagnar skipan starfshóps félags- og vinnumarkaðsráðherra um mótun tillagna um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Skorar byggðarráðið á ráðherra að hraða vinnu hópsins þannig að hann skili af sér niðurstöðum fyrir Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer 28. september nk. „Fyrirmyndar að skjótum viðbrögðum má sækja í verkfærakistu matvælaráðherra sem skipaði fyrr í sumar svokallaðan spretthóp sem gekk fumlaust og vasklega til verks,“ útskýrir ráðið og leggur enn fremur áherslur á að ríkisvaldið tryggi aukið fjármagn til málaflokksins á árinu 2022 til að stöðva langvarandi halla á rekstri hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir