Ríkistjórnin styrkir fjölskylduna sem enn er föst í Kólumbíu

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að verja þremur milljónum af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja fjölskylduna sem dvalið hefur í Kólumbíu í níu mánuði í þeim tilgangi að ættleiða þaðan tvær stúlkur.

Fjölmiðlar á Íslandi hafa fjallað töluvert um aðstæður íslenskrar fjölskyldu, sem er fyrir milligöngu Íslenskrar ættleiðingar í Kólumbíu til að ættleiða tvær ungar stúlkur. Hjónin Bjarnhildur og Friðrik fóru í desember síðastliðnum til Kólumbíu en hafa ekki ennþá komist heim með börnin vegna þess að mál þeirra hefur þæfst hjá þarlendum dómstól.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Íslenskri ættleiðingu er mál þessarar fjölskyldu einstakt og á sér ekki hliðstæðu í Kólumbíu eða í reynslubanka Íslenskrar ættleiðingar.

„Augljóst er að óvænt níu mánaða dvöl í öðru landi hefur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir fjölskylduna og þá ekki síst á fjárhag hennar. En samkvæmt fréttum stendur kostnaður þeirra nú í um 12 milljónum króna vegna þessarar útiveru,“ segir í fréttatilkynningunni.

Á föstudagskvöld bárust Íslenskri ættleiðingu þær gleðilegu fréttir að ríkisstjórn Íslands hafi tekið þá ákvörðun að verja af ráðstöfunarfé sínu þremur milljónum til að styrkja fjölskylduna í sínum þröngu aðstæðum.

Það mun hafa verið Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sem, eftir ábendingu frá skrifstofustjóra í Innanríkisráðuneytinu, beitti sér fyrir því utan og innan ríkisstjórnar að fjölskyldunni yrði lagt lið með þessum hætti.

„Félagar í ættleiðingarfélaginu hljóta að fagna þessum fréttum sem þó koma varla á óvart því ættleiðingarmálaflokkurinn hefur aldrei áður fengið jafn mikla athygli hjá neinni íslenskri ríkisstjórn,“ segir loks í fréttatilkynningunni.

 

Fleiri fréttir