Rjúpnaveiðin að byrja
Í ár er eingöngu heimilt að veiða rjúpu í níu daga. Fyrsti veiðidagurinn er föstudaginn 28. október en veiða má rjúpu þá helgi ásamt þremur öðrum helgum í nóvember. Nánari upplýsingar um tímasetningar má sjá á vef Umhverfisstofnunar. Ekki er hægt að ganga að því vísu að veður verði veiðimönnum hliðhollt þessa níu daga og þar sem dagarnir eru fáir má búast við því að einhverjir fari af stað þótt veðurspá sé óhagstæð. Hafa þarf í huga að veiðar eru oftar en ekki stundaðar fjarri byggð þar sem veður getur skipast skjótt í lofti.Oft er mun verra verður upp til fjalla en niðri á láglendi.
Áður en haldið er af stað er góður undirbúningur mikilvægur. Enginn ætti að vanmeta slíkt því það getur skipt öllu um öryggi ferðarinnar.
- - Gera ferðaáætlun og láta vita af henni.
- - Skoða veðurspá og færð og hætta við ef útlit er vont.
- - Vera viss um að bíllinn sé útbúinn fyrir viðkomandi ferð.
- - Hafa staðsetningartæki, farsíma, áttavita og kort meðferðis.
- - Huga vel að klæðnaði en best er að vera í nokkrum lögum af fötum og vera í ysta lagi í áberandi lit.
- - Vera með orkuríkt nesti og nægan vökva, sér í lagi heitan.
- - Taka með sjúkragögn.
- - Fylgja öryggisreglum sem eru kenndar á skotveiðinámskeiðum.
- - Opna byssulásinn og afhlaða byssuna þegar farið er yfir erfið svæði.
- - Vísa hlaupi skotvopns aldrei að samferðarmanni.
- - Veiða ekki einsamall eða í margmenni.
Með réttri hegðun má koma í veg fyrir mörg óhöpp, slys og útköll björgunarsveita, setjum hana því ávallt í fyrsta sæti.
/Vís.is