Roam Like Home í Skandinavíu og ótakmörkuð símtöl til Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada
Íslenska fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum upp á „Roam Like Home“ í Skandinavíu og ótakmörkuð símtöl til Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada frá og með deginum í dag.
Með Roam Like Home geta viðskiptavinir Hringdu ferðast til Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og notað símann sinn alveg eins og á Íslandi án nokkurs auka kostnaðar. Viðskiptavinir fá ótakmörkuð símtöl og skilaboð og geta notað innifalið gagnamagn í áskriftarleið sinni hvar sem er innan Skandinavíu.
“Um nýjung er að ræða á íslenskum fjarskiptamarkaði en við höfum séð þessa þróun eiga sér stað í nágrannalöndum okkar. Skandinavía er vinsæll áfangastaður og því ættu margir að geta lækkað fjarskiptakostnaðinn sinn,” segir Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs Hringdu.
Hringdu býður einnig ótakmörkuð símtöl til Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada frá Íslandi en Kristinn segir að frá upphafi hafi fyrirtækið boðið lægri verð á símtölum til útlanda.
“Við vildum gera enn betur með því að einfalda hlutina og teljum okkur svo sannarlega hafa gert það. Löndin eru þau allra vinsælustu sem hringt er til frá Íslandi og því mikil kjarabót fyrir neytendur” segir Kristinn Pétursson.
Þjónusturnar verða í boði fyrir farsíma og heimasíma á nýrri þjónustuleið frá og með deginum í dag.