Rokkbúðir fyrir stelpur og konur í sumar

Rokkbúðir fyrir stelpur og konur verða á Akureyri í sumar.
Rokkbúðir fyrir stelpur og konur verða á Akureyri í sumar.

Í sumar verður boðið upp á rokkbúðir fyrir stelpur og konur á Akureyri. Verkefnið er 5 ára í ár og búðirnar á Akureyri eru styrktar af Sóknaráætlun Norðurlands vestra og Akureyrarstofu.

Í rokkbúðunum læra þátttakendur á hljóðfæri, spila í hljómsveit, taka þátt í spennandi vinnustofum, fá tónleikaheimsókn frá flottum tónlistarkonum og flytja eigin lög á þrusutónleikum. Vakin er athygli að því að engin hljóðfærakunnátta er nauðsynleg til að taka þátt.

Fyrri rokkbúðirnar, Konur rokka, verða 3.-5. Júní og eru allar konur, transmenn og kynsegin einstaklingar boðin velkomin, ekki síst 50 ára og eldri. Seinni búðirnar, Stelpur rokka, verða svo 18.-22. júlí og er þær ætlaðar stelpum og transkrökkum 12-16 ára.

Rokkbúðirnar verða í Rósenborg á Akureyri og er vakin athygli á því að got aðgengi er fyrir fólk með hreyfihömlun.

Fleiri fréttir