Röskun á skólahaldi vegna veðurs

Talsvert hvassviðri gengur nú yfir landið en reikna má með að það verði gengið niður um eða upp úr hádeginu. Til að mynda fór vindstyrkur við Miðsitju í Blönduhlíð í 48 m/s í hviðum á áttunda tímanum í morgun. Vindmælir við Stafá virðist hafa gefið sig í rokinu og sýnir nú engar tölur.
Vegna veðurs og hálku fellur skólahald niður í Grunnskólanum austan Vatna á Sólgörðum, Hofsósi og á Hólum í dag, skólabílar frá Varmahlíðarskóla aka ekki Blönduhlíð, Lýtingsstaðahrepp og Skörð en heimakstur verður í lok skóladags. Í Húnavallaskóla, bæði leik- og grunnskóla, fellur skólahald niður og skólabílar Grunnskóla Húnaþings vestra aka ekki í fyrrum Bæjarhreppi, um vestanverðan Miðfjörð og vestanvert Vatnsnes.