Rúllupylsukeppni á Ströndum
Sauðfjársetur á Ströndum og Slow food samtökin á Íslandi halda Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð í Sauðfjársetrinu á Ströndum laugardaginn 23. nóvember nk. Er þetta í annað sinn sem keppnin er haldin. Árið 2012 fór keppnin fram í Króksfjarðarnesi og þá fengu Strandamennirnir Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsavík, verðlaun fyrir léttreykta rúllupylsu.
Í tilkynningu frá Sauðfjársetrinu segir að rúllupylsuuppskriftir þekkiast úr fornum og nýjum uppskriftarbókum en líklegt er að margar og margvíslegar uppskriftir séu til á heimilum landmanna hver annarri betri.
Keppnisreglur:
• Þátttakendur mega koma með eins margar gerðir rúllupylsa og þeir vilja.
• Þátttakendur bjóða gestum að smakka á rúllupylsunum
• Dómnefnd valinkunnra matgæðinga og smakkara mun leggja dóm á lykt, áferð, bragð, framsetningu og frumleika.
• Viðurkenningar verða veittar fyrir þrjú fyrstu sætin og einnig aukaverðlaun fyrir frumleika.
Þeim sem ekki eiga heimangengt með sínar rúllupylsur er bent á að þær má senda á Sauðfjársetrið og starfsmenn þess taka að sér að sjá um framsetningu og kynningu. Gott er að tilkynna þátttöku hjá Ester í síma: 8233324 eða á netfangið www.saudfjarsetur@strandir.is.