Rúmar 60 milljónir í áframhaldandi ljósleiðaravæðingu

Frá fundi í Varmahlíð. Mynd: Gunnar Rögnvaldsson.
Frá fundi í Varmahlíð. Mynd: Gunnar Rögnvaldsson.

Sveitarfélagið Skagafjörður boðaði til íbúafundar sl. fimmtudag í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð þar sem kynntir voru styrkir og framtíðarlagnir ljósleiðara í dreifbýli héraðsins.  Haraldur Benediktsson, alþingismaður og formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs mætti á fundinn ásamt um 60 gestum sem kynntu sér hvernig verkefnið stendur og hvert það stefnir.

Haraldur Benediktsson kynnti verkefnið Ísland ljóstengt og þá vinnu sem hann hefur beitt sér fyrir og segir Bryndís Lilja Hallsdóttir verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði að það hve vel verkefnið gengur er mikið fagnaðarefni og eru miklar vonir bundnar við að það haldi áfram að ganga jafn vel á komandi árum.

Staða á lagningu ljósleiðararöra og lagna í dreifbýli í Skagafirði.

 

 Að sögn Bryndísar fór Indriði Einarsson, sviðsstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs yfir stöðuna í Skagafirði, en Sveitarfélagið Skagafjörður fékk úthlutað alls 53.838.800 kr. fyrir 151 tengingu. Auk þess fékk sveitarfélagið úthlutað 9,8 milljónum úr Byggðasjóði til uppbyggingar ljósleiðara í dreifbýli.

Hún segir að framkvæmdir í Lýtingsstaðahreppi verði boðnar út á næstunni samhliða hitaveituframkvæmdum á svæði 5 en svæði 3, 4 og 9 verða einnig boðin út á árinu 2017. Ekki er búið að úthluta styrkjum fyrir árið 2018 og því ekki hægt að segja til um í hve miklar framkvæmdir hægt verður að ráðast á því ári.

Eftir að Haraldur og Indriði höfðu lokið sínu máli var opnað á fyrirspurnir. Ásamt Indriða og Haraldi sáu einnig Gísli Sigurðsson og Einar Einarsson, sem báðir sitja í veitunefnd,  fyrir svörum. 

Fleiri fréttir