Rúmlega 104.000 fjár slátrað á Blönduósi
Sláturtíðin gekk vel hjá SAH Afurðum á Blönduósi í haust, enda þaulvant fólk sem kemur til starfa ár eftir ár og gengur í sínar stöður, að því er sagt er frá á vef Sölufélagsins. Alls var slátrað 104.196 fjár að þessu sinni sem er aukning um þúsund fjár frá því í fyrra.
Á vefnum segir einnig að þessi fjöldi sláturgripa gefi af sér nær 1.800 tonn af kjöti í frystigeymslur félagsins. Meðalþungi dilka hækkaði á milli ára og var nú 16,47 kíló á móti 16,25 kílóum haustið 2014.
Á vefnum er starfsfólki í sláturtíð þökkuð vel unnin störf og fastir starfsmenn fá sérstakar þakkir, þar sem þeir eru kjarninn í atvinnustarfsemi félagsins.