Rútuferðir Akureyri-Reykjavík í sumar

Sterna rútufyrirtæki byrjaði ferðir á leiðinni Akureyri-Reykjavík þann 1. júní eins og verið hefur síðustu ár. Stoppistöðvar Sterna eru KS Varmahlíð og N1 á Blönduósi.

Afgreiðsla og ferðamannaverslun Sterna er staðsett í Hafnarstræti 77 á Akureyri og er opin frá kl 8-18 alla daga. Í Reykjavík hefur sú breyting orðið að Sterna er staðsett í Hörpu, tónlistarhúsi allra landsmanna. Harpa er því komu- og brottfararstaður sem og afgreiðsla Reykjavíkurmegin. Því miður er mjög takmarkað pláss til pakkageymslu í Hörpunni og því ekki hægt að taka pakka fyrir einstaklinga, segir í auglýsingu frá fyrirtækinu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni sterna.is.

Fleiri fréttir