Rútuslys í Langadal
Rúta með átta farþega innanborðs fór út af veginum ofarlega í Langadal upp úr klukkan tvö í dag og hafnaði að hluta ofan í Blöndu.
Björgunarsveitin Blanda á Blönduósi var kölluð á vettvang, ásamt lögreglu og þremur sjúkrabílum. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu eru allir farþegarnir komnir í land en vatn var farið að flæða inn í rútuna.
Að minnsta kosti einn er slasaður en að sögn lögreglunnar á Blönduósi eru meiðsl hans ekki talin alvarleg.
Aðstæður á staðnum eru erfiðar, krapi og mjög hvass vindur. Á Rúv.is kemur fram að slysið hafi orðið skammt norðan við bæinn Auðólfsstaði. Rútan var á leið milli Reykjavíkur og Akureyrar á vegum Strætó.