RÚV eflir starfsemi sína á landsbyggðinni

RÚV ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum. Framundan er vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar á starfsemi RÚV utan höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt fréttatilkynningu frá RÚV mun svæðisstjóri RÚVAK leiða þær breytingar sem framundan eru á starfsemi RÚV á landsbyggðinni.

„Hlutverk svæðisstjóra á Akureyri er með nokkuð breyttu sniði en hlutverk stöðvarstjóra var áður þar sem svæðisstjóri mun stýra starfsemi RÚV á Akureyri sem og starfsemi á landsbyggðinni. Því hefur verið ákveðið að auglýsa starfið laust til umsóknar,“ segir í tilkynningunni. Í starfinu felst meðal annars ábyrgð á fréttaflutningi og dagskrárgerð svæðisstöðva í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum. Þá eru ýmsar breytingar áformaðar, meðal annars verður lögð aukin áhersla á miðlun svæðisbundinna frétta á vef RÚV.

„RÚV er með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum en starfsfólki RÚV á landsbyggðinni hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum. Ný yfirstjórn RÚV hefur boðað að aukin áhersla verði lögð á landsbyggðina í starfsemi RÚV. Endurskipulagning starfseminnar á Akureyri er fyrsta skrefið í þá átt,“ segir loks í tilkynningunni.

Á næstu dögum munu birtast auglýsingar þar sem auglýst er eftir fréttamanni og svæðisstjóra RÚVAK með aðsetur á Akureyri sem mun leiða starfið á landsbyggðinni. Umsóknarfrestur er til 1. september.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir