Safna fyrir sjálfvirku hjartahnoðtæki

Sjúkraflutningamenn á Hvammstanga hafa komið af stað söfnun fyrir sjálfvirku hjartahnoðtæki sem nefnist Lucas 2. Að sögn Gunnars Sveinssonar sjúkraflutningamanns mun tækið hafa mikla þýðingu fyrir samfélagið þar sem fáir koma að endurlífgun þegar hún á sér stað. Lucas 2 kemur alveg í stað fyrir þann sem hnoðar og viðheldur fullkomnu hnoði í langan tíma svo lengi sem hann hefur rafmagn, sem er mun lengur heldur en venjulegur maður hefði úthald til.

-Söfnunin hefur farið ágætlega af stað og höfum við leitað til fyrirtækja og einstaklinga í samfélaginu. Nú þegar hafa safnast 750 þúsund krónur frá tveimur aðilum, en kostnaður við kaup á þessu tæki er 2,5 milljónir. Þetta er í fyrsta sinn sem fer fram almenn söfnun fyrir sjúkrabíla á Hvammstanga frá því ég kom inn í þetta fyrir átta árum, segir Gunnar.

-Það var fyrst byrjað að safna fyrir Lucas 2 á Akranesi og þá gáfu tvö fyrirtæki tæki þangað. Nú eru þau í Búðardal að bíða eftir tækinu sínu sem þau hafa safnað fyrir.

-Við töldum að okkar góða samfélag myndi taka vel á móti þessu hér eins og annarsstaðar og það hefur verið virkilega gaman að finna stuðninginn, segir Gunnar.

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga hafa ákveðið að halda utan um söfnunina og er reikningsnúmerið: 0159-15-200135 og kennitalan: 711006-2140.

Fleiri fréttir