Sagnadagur í Húnaþingi vestra

Sagnadagur verður í Húnaþingi vestra laugardaginn 12. apríl næstkomandi og samanstendur hann af sagnanámskeiði á Reykjaskóla og Sagnakvöldi á Gauksmýri. Að deginum standa Grettistak og Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna í samstarfi við ILDI, eins og sagt er frá á fésbókarsíðu safnsins.

Fyrri hluti Sagnadagsins er sagnanámskeið á Reykjaskóla sem hefst með setningu klukkan 13:00 og er áætlað að því ljúki klukkan 18:00. Á námskeiðinu verða flutt erindi um sagnaarfinn og sagnalist, hugmyndasmiðja um viðhald og nýtingu sagna og sagnamennsku í Húnaþingi og örnámskeið í sagnalistinni.

Síðari hluti Sagnadagsins er sagnakvöldverður- og skemmtan á Sveitasetrinu Gauksmýri sem hefst klukkan 19:00. Þar verður Einar Kárason, rithöfundur og sagnameistari aðalsögumaður kvöldsins.

Dagskrá Sagnadagsins:

Kl. 13:00

Setning Sagnanámskeiðs

Kl. 13:15

"Allt satt og rúmlega það."

Erindi um sagnaarfinn og sagnalist.

Ingi Hans Jónsson, sagnarmaður.

Kl. 14:00

Sögurnar okkar.

Yfirlit um sagnaarfinn í Húnaþingi.

Pétur Jónsson og Sigríður Bachmann.

Kl. 14:20

Sögur í tíma og ótíma - Að halda sagnahefðinni lifandi.

Umræður og hugmyndasmiðja um viðhald og nýtingu sagna og sagnmennsku í Húnaþingi.

Kl. 15:00

Kaffiveitingar á Byggðasafninu að Reykjum.

Kl. 15:45

Að segja sögur - örnámskeið.

Allir hafa hæfileika til að segja sögur. Þetta stutta námskeið veitir tilsögn og ábendingar um "verkfærakistu sagnamannsins" og hvað ber helst að varast í sagnalistinni. Þátttakendur spreyta sig á að segja sögur og fá leiðbeiningar um góða sagnamennsku.

Kl. 18:00

Sagnanámskeiði lýkur.

Kl. 19:00

Sagnakvöldverður (þríréttað) og -skemmtan á Sveitasetrinu Gauksmýri.

Öllum opið.

Kl. 20:00

Sagnaskemmtan hefst.

Þekktir og óþekktir sagnamenn láta sögurnar flakka.

Aðalsögumaður kvöldsins er Einar Kárason, rithöfundur og sagnameistari.

Verð fyrir Sagnadaginn er:

Sagnanámskeið 4.500 kr.

Sagnakvöldverður og -skemmtan 6.700 kr.

Sagnaskemmtan 1.500 kr.

Sagnanámskeið, -kvöldverður og -skemmtan 9.000 kr.

Skráningar fara fram hjá Gudrunu Kloes í síma 898-5154 og á netfanginu gudrun@ssnv.is. Sjá einnig á www.visithunathing.is og www.grettistak.is.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir