SAH afurðir hækka verð á nautakjöti til bænda
SAH afurðir á Blönduósi hafa tilkynnt hækkun á framleiðendaverði nautgripakjöts og tók hún gildi frá og með gærdeginum, 11. apríl samkvæmt því sem kemur fram á vef LK. Þá hefur samanburður á afurðaverði sláturleyfishafa verið uppfærður og eru sláturhúsin á Norðurlandi vestra þá með hæsta raunvirði greiðslu.
Uppfærða verðlista sláturleyfishafa 12. apríl 2012 má finna HÉR
Og samanburð á afurðaverði og greiðslukjörum 12. apríl 2012 má finna HÉR