SAH afurðir hækka verði á hrossakjöti
SAH afurðir á Blönduósi hafa í kjölfar aukinnar eftirspurnar á hrossakjöti ákveðið að hækka umtalsvert verð fyrir hrossakjöt en samkvæmt nýrri verðskrá greiða þeir nú 135 krónur á kílóið fyrir HR1A.
Á heimasíðu félagsins eru bændur hvattir til að hafa samband við sláturhússtjóra og panta slátrun hefi þeir hross til slátrunar.