SAH afurðir hækkar verð á nautgripakjöti
SAH afurðir hækkuðu verð á nautgripakjöti til bænda þann 6. maí sl. og greiða því sambærileg verð og þeir sem hæstir bjóða. Þá hækkaði Sláturfélag Vopnfirðinga verð til bænda á nokkrum flokkum nautgripakjöts frá og með 1. maí sl. Vegna erfiðra markaðsaðstæðna er ekki hægt að taka við hrossum til slátrunar hjá SAH afurðum eftir 1. maí.
Sú staða er upp komin, segir á heimasíðu fyrirtækisins, þar sem mikið er til af hrossakjöti sem erfiðlega gengur að selja og þá ekki forsendur til að taka fullorðin hross til slátrunar.
Náið verður fylgst með þróun markaða og verður hrossaslátrun hafin að nýju um leið og eitthvert svigrúm myndast til sölu afurða.
Verðlista sláturleyfishafa er hægt að sjá HÉR.