Saknar um 200 fjár

Útlitið er betra hjá Sigurði Erlendssyni bónda á Stóru-Giljá í Húnavatnshreppi en leit út í fyrstu en hann geymdi allt sitt fé í Sauðadal sem fylltist af snjó í hretinu þann 10. september sl.

Í fréttum Ríkisútvarpsins um sl. helgi kom fram að Sigurður saknaði 400 lamba og nokkurs af fullorðnu en síðan þá hefur talsvert fé komið í leitirnar þegar réttað var sl. mánudag. „Svo verður smalað aftur um næstu helgi og þá kemur vonandi fleira í ljós,“ sagði Sigurður í samtali við Feyki.

Sigurð vantar ennþá rúm 200 lömb og nokkrar ær og gerir hann sér vonir um að fleiri komi í leitirnar um helgina. Aðstæður til smölunar í Sauðadal segir hann hafa lagast til muna, snjórinn nánast að hverfa nema úr stærstu giljum.

Aðspurður um hvort hann hafi fundið mikið dautt segist hann hafa fundið nokkra tugi. „Ég fann strax 25 kindur dauðar og svo hefur smátt og smátt bæst við. Það má vænta að sú tala hækki eitthvað, það skýrist á næstu vikum,“ sagði Sigurður.

Sigurður segir fleiri bændur í Vatnsdal og Svínadal hafi látið fé sitt ganga á Sauðadal og þeim vanti þá einnig töluvert, þó hefur eitthvað vænkast hagur hjá þeim. Ljóst er þó að flestir hafi lent í einhverju tjóni.

Fleiri fréttir