Sala ólöglegra fæðubótarefna kærð til lögreglu
Matvælastofnun hefur, í samvinnu við Lyfjastofnun, kært vef með íslensku léni til lögreglu og farið fram á að honum verði lokað. Einnig varar Matvælastofnun við viðskiptum við vefinn www.roidstop.is og neyslu fæðubótarefna og lyfja sem vefurinn segist selja.
Í frétt á vef Matvælastofnunar kemur fram að rétthafi lénsins sé skráður í Mið-Ameríku en vefleit gefi til kynna starfsemi í Ástralíu. Á vefnum eru auglýst til sölu bæði ólögleg fæðubótarefni og lyf. Á síðunni eru til sölu hættuleg efni s.s. DNP og Nootropics. Nýlega féll dómur í Bretlandi vegna dauðsfalls ungrar stúlku sem hafði neytt DNP og var sölumaðurinn dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að selja hættulegt efni til manneldis. Grunur leikur á að nýlegt andlát einstaklings hér á landi megi rekja til inntöku á Nootropics (tianeptine).
Matvælastofnun hvetur neytendur til að vera ávallt á varðbergi þegar kemur að kaupum á fæðubótarefnum og lyfjum á netinu.
Matvælastofnun barst ábending um vefinn í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF).
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.