Sameiginleg lögreglusamþykkt sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Dæmi um skiltin sem vísa á næsta tjaldsvæði. Mynd af vef SSNV.
Dæmi um skiltin sem vísa á næsta tjaldsvæði. Mynd af vef SSNV.

Sveitarfélögin sjö á Norðurlandi vestra hafa um nokkurt skeið unnið að gerð sameiginlegrar lögreglusamþykktar en unnið var uppkast að henni í samráði við lögreglustjóra sem stjórn SSNV yfirfór og samþykkti. Í kjölfarið var samþykktin send sveitarfélögunum og lögreglustjóra til athugasemda. Eftir að tekið hafði verið tillit til þeirra var samþykktin send sveitarfélögunum að nýju til staðfestingar. Að því loknu var hún send ráðherra til undirritunar og birtingar sem sjá má hér.

Frá þessu er sagt á vef SSNV. Þar segir að meðal þess sem ný samþykkt fjalli um séu málefni sem hafa verið áberandi í umræðunni í kjölfar fjölgunar ferðamanna í landshlutanum s.s. hvar ferðamönnum sé heimilt að gista í tjöldum og sk. ferðavögnum, þ.e. húsbílum og smærri ferðabílum. Nokkuð hefur verið rætt um að ferðamenn hafi næturstað óleyfilega á ýmsum stöðum í landshlutanum með tilheyrandi óþrifnaði sem af slíku hlýst og stundum ónæði. Staðreyndin sé sú að lang flestir ferðamenn vilji breyta rétt og fara að lögum og reglum þar sem þeir koma en hins vegar hafi það kannski ekki alltaf verið ljóst hvað sé leyfilegt í þessum efnum. Ný sameiginleg lögreglusamþykkt gefi bæði þjónustuaðilum, sveitarfélögum og eftirlitsaðilum tækifæri á að koma þessum samræmdu upplýsingum betur til skila til gesta á svæðinu jafnframt því sem það gefi gestum betur kost á að breyta rétt þegar kemur að vali á náttstað sem svo aftur skili sér í ánægjulegri upplifun.

Fagráð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra, sem í sitja fulltrúar ferðamálafélaga svæðisins ásamt fulltrúum SSNV, hafa látið gera skilti með leiðbeiningum til ferðamanna og eru þau nú þegar komin upp á nokkrum stöðum sem algengt er að ferðamenn hafi náttstað á en ekki er heimilt skv. lögreglusamþykktinni. Á skiltum þessum er jafnframt vísað á næsta tjaldsvæði, ferðamanninum til hægðarauka. Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá dæmi um slíkt skilti.

Sameiginlega lögreglusamþykktin nær til Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar, Blönduóss, Húnavatnshrepps og Húnaþings vestra og mun einfalda störf lögreglunnar í landshlutanum til muna að því er segir á vef SSNV.

Samþykktin hefur þegar tekið gildi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir