Sameiginlegur fundur UMFÍ og ÍSÍ á Blönduósi
Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10. bekk. Miðvikudaginn 30. janúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi á Blönduósi í sal Stéttarfélagsins Samstöðu, Þverbraut 1, og hefst fundurinn kl. 20:00.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá UMFÍ mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða þar um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.