Sameiningin kolfelld af íbúum á Skagaströnd
Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins á laugardagskvöldið var fjallað um það að sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu hefðu ráðið sérfræðing frá KPMG til að gera úttekt á hagkvæmni þess að sameina sveitarfélögin öll. Rætt var við Ágúst Þor og Adolf og fram kom að skýrslan eigi að vera tilbúin í október á þessu ár.
„Það er í reynd verið að færa okkur til nútímans. Við höfum ekki ennþá náð því skrefi að sameina þessi fjögur sveitarfélög sem hér standa eftir og þetta er kannski liður í þeirri vinnu að nálgast það stig,“ sagði Ágúst Þór Bragason í viðtali við Ríkisútvarpið. Ágúst segir mikinn vilja til sameiningar meðal íbúa á Blönduósi, en það á ekki við alls staðar ef sagan er skoðuð. Síðast þegar kosið var um sameiningu sveitarfélaga á þessu svæði, var sameiningin kolfelld af íbúum á Skagaströnd.
„Ég er ekki að segja að sú staða sé uppi í dag. En ég held hins vegar að mönnum finnist að það þurfi að koma eitthvað öflugt hér inn á svæðið og við viljum kannski reyna að blanda því í þessa umræðu, í framhaldi af þessari hagkvæmniúttekt, hvort sveitarfélögin fái öflugan stuðning frá stjórnvöldum,“ sagði Adolf í fréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag. Húni.is segir frá þessu.