Sameiningu heilbrigðisstofnana frestað

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, hefur gefið það út að áformum um sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni hafi verið frestað til 1. september á næsta ári. Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðaráðs Skagafjarðar fagnar ákvörðun ráðherra og segir tímann fram að því verða nýttan til að ná samkomulagi á milli ríkisins og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um yfirtöku þess síðarnefnda á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki.

Stefán segir að heilbrigðisráðherra sé tilbúinn til viðræðna við sveitarfélagið um að það taki yfir rekstur stofnunarinnar og verji þá þjónustu sem nú þegar er veitt. Á stefnuskrá stjórnvalda hafi verið að færa öldrunarþjónustuna og heilsugæsluna til sveitarfélaganna og þá sé ekkert eftir nema sjúkrarýmin.

-Okkur finnst eðlilegast að sveitarfélagið skoði það að taka stofnunina yfir í heilu lagi þar sem reksturinn er svo samþættur. Erfitt er að slíta hann hvern frá öðrum án þess að skemma þau samlegðaráhrif sem þetta hefur. Við lítum á þetta sem möguleika fyrir okkur til að tryggja stöðugleika og að það verði ekki frekari þjónustuskerðingar en orðið hafa á stofnuninni, segir Stefán og bætir við að enginn akkur sé fyrir sveitarfélagið í sjálfu sér að reka stofnunina að öðru leyti en því að það sé sterkasti leikurinn til að tryggja íbúum héraðsins sem besta þjónustu.

-En auðvitað þarf margt að ganga upp til að þetta geti orðið að veruleika. Við þurfum fjármagn frá ríkinu sem ætlaðir eru til rekstursins og mögulega eitthvað meira því ekki verður tekið úr sjóðum sveitarfélagsins, segir Stefán. Hann segir að stóra málið sé einkum það að hægt var að fresta þessum sameiningaráformum ráðherrans því annars hefði Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki hætt að vera til í núverandi mynd um næstu áramót.

-Það er eitthvað sem við gátum ekki sætt okkur við, segir Stefán.

Fleiri fréttir