„Samfélagið á Skagaströnd hefur reynst okkur vel“
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson eru búsett á Skagaströnd og segja að hvergi sé betra að vera. Hugrún er frá Blönduósi en Jón, eða Jonni eins og hann er oftast kallaður, innfæddur Skagstrendingur. Tónlistin er stór partur af lífi þeirra beggja og kynntust þau einmitt í gleðskap á vegum Tónlistarskólans þar sem þau kenndu bæði um tíma.
Jonni starfaði samhliða tónlistarskólanum á Vélaverkstæðinu á staðnum, og hefur verið að læra pípulagnir í fjarnámi samhliða vinnunni. Þar lenti hann í vinnuslysi í september í fyrra og er nýlega farin að vinna aftur, part úr degi. Feykir heimsótti þessi jákvæðu og lífsglöðu ungu hjón sem segja hér frá tónlistinni í lífi þeirra, afleiðingum slyssins og góðu samfélagi á Skagaströnd.
Umrætt slys varð 10. september síðast liðinn, þegar Jonni var við vinnu sína á verkstæðinu. „Það vildi þannig til að ég dett af bílpalli og fæ ofan á mig gasvagn, með gas- og súrflöskum, og tókst að mölva hryggjarlið neðarlega í bakinu á mér,“ útskýrir Jonni. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Akureyrar og lá þar í tvær vikur og síðan viku á Blönduósi. Í kjölfar slyssins var hann nánast rúmfastur í fjóra mánuði, það er mátti ekki setjast upp og varð því alltaf að liggja eða standa. „Það var bara svo lítið sem ég gat staðið þannig að það má segja að stóran hluta af þessum tíma hafi ég legið,“ segir hann meðal annars í opnuviðtali í Feyki þessa vikuna.