Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar
Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar laugardaginn 5. apríl 2014 kl. 12-17 í Edduveröld, Borgarnesi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Guðbjartur Hannesson flytur erindi og tekur þátt í umræðum.
Ef félagsmenn hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, eða til annarra embætta sem kosið verður um, eða senda inn lagabreytingar, þá er hægt að senda tölvupóst á Ólaf Inga Guðmundsson formann kjördæmisráðs í netfangið olafuringigudmundsson@hotmail.com.
Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi sveitarstjórnarkosninga þann 31. maí 2014.
Fyrir hönd stjórnar kjördæmisráðs,
Ólafur Ingi Guðmundsson, formaður
/Fréttatilkynning