Samkaup og Kaupfélag Húnvetninga undirrita samning

Samkaup og Kaupfélag Húnvetninga hafa skrifað undir samning sem veita félagsmönnum kaupfélagsins 2% afslátt af viðskiptum í verslunum Samkaupa um allt land, auk þess munu Samkaup bjóða félagsmönnum reglulega tilboð með verulega auknum afslætti. Húni.is greinir frá þessu.

 „Nýir félagar munu geta skráð sig í kaupfélagið á heimasíðu Samkaupa www.samkaup.is og eins í verslunum Úrvals á Blönduósi og á Skagaströnd,“ sagði Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa í samtali við Húna.is.

„Í tilefni undirritunar samningsins verða sérstök tilboð fyrir félagsmenn í verslunum á Blönduósi og á Skagaströnd, um næstu helgi,“ bætti Ómar við. Núverandi félagsmenn í kaupfélaginu munu fá send sérstök afsláttarkort í pósti næstu daga.

Samkaup eru að stærstum hluta í eigu kaupfélaga og rekur félagið um 50 verslanir víða um land, verslanir sem flestar voru áður reknar undir merkjum einstakra kaupfélaga.

Fleiri fréttir