Samkaup styrkir Styrktarsjóð Húnvetninga
Árlega úthlutar Samkaup styrkjum til samfélagsmála í desembermánuði, er þetta gert samkvæmt stefnu félagsins um samfélagslega ábyrgð. Að þessu sinni voru styrkirnir þrettán talsins og á meðal styrkþega var Styrktarsjóður Húnvetninga. Húni.is greinir frá.
Skemmst er að minnast þegar aflýsa þurfti hinu árlega balli Styrktarsjóðs Húnvetninga, sem halda átti í október, vegna verkfalls SFR og varð sjóðurinn af mikilvægum tekjum.
Samkaup hf. sem meðal annars rekur verslunarkeðjuranar Nettó, Samkaup Úrval, Samkaup Strax og Kaskó. Styrkir Samkaupa koma til viðbótar við önnur samstarfsverkefni sem Samkaup styrkja víðsvegar um landið á hinum ýmsu sviðum allt árið um kring.
Nú í desember voru veittir styrkir til:
- Hjálpræðisherinn í Reykjavík
- Fjölskylduhjálp Íslands
- Velferðasjóður Suðurnesja/Keflavíkurkirkja
- Njarðvíkurkirkja. Velf.sjóður Njarðvíkur
- Grindavíkurkirkja
- Borgarneskirkja
- Selfossprestakall
- Mæðrastyrksnefnd Akureyrar
- Samhljómur (fjöl.&styrkt.sjóður þing.sýslu)
- Styrktarsjóður Húnvetninga
- Karmelsystur Akureyri
- Karmelítuklaustur Hafnarfirði
- Kærleiksboðberar Reykjavík