Samkomubann framlengt til 4. maí

Frá fréttamannafundi 13. mars 2020 þegar tilkynnt var um takmarkanir á samkomum á skólahaldi. Mynd: stjornaradid.is.
Frá fréttamannafundi 13. mars 2020 þegar tilkynnt var um takmarkanir á samkomum á skólahaldi. Mynd: stjornaradid.is.

Ákveðið hefur verið að framlengja þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi til 4. maí. Sú ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur fjölgað hratt.

„Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyrirmælum okkar besta fagfólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heilbrigðiskerfið fari yfir þolmörkin“ segir heilbrigðisráðherra.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra kemur fram að margvíslegar aðgerðir hafa, m.a. framangreindar takmarkanir, skilað því að tekist hefur að hefta útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu.

„Til þessa hefur fjölgun smita ekki verið meiri en svo að hún helst í hendur við bjartsýnustu spár hvað það varðar samkvæmt spálíkani sérfræðinga þar að lútandi sem sjá má á vefnum Covid.hi.is. Aftur á móti hefur alvarlega veikum einstaklingum fjölgað jafnt og þétt, sem lýsir sér m.a. með miklu álagi á gjörgæsludeild Landspítalans. Ljóst er að frekari aukning á smiti í samfélaginu með fjölgun alvarlega veikra, getur skapað mikinn vanda innan heilbrigðiskerfisins og torveldað því að gegna hlutverki sínu eins og þörf krefur,“ segir á stjornarradid.is.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir