Samkomulag um yfirfærslu á þjónustu við fatlaða

Þann 23. nóvember 2010 var undirritað heildarsamkomulag ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu á þjónustu við fatlaða. Með því hefur enn einum verkþætti yfirfærsluverkefnisins verið hrint í framkvæmd. Er nú hafið yfir allan vafa að frá og með 1. janúar 2011 munu sveitarfélögin í landinu taka við ábyrgð á framkvæmd þessa mikilvæga en um leið viðkvæma málaflokks.

Samhliða undirritun heildarsamkomulagsins hefur verið gengið frá þeirri aðlögun á lagaramma um málaflokkinn, sem nauðsynleg er til þess að yfirfærslan geti átt sér stað. Ráðuneyti hafa fyrir sitt leyti gengið frá frumvörpum til þessara breytinga og hafa þau verið kynnt í ríkisstjórn, fyrir stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og fyrir hagsmunasamtökum. Þessi frumvörp, auk fjárlaga fyrir árið 2011, munu festa í lög þann fjárhagsramma verkefnisins sem undirritaður var 6. júlí sl. Samvæmt því munu sveitarfélögin fá 1,20% hækkun á útsvarshlutfalli gegn samsvarandi lækkun á tekjuskattshlutfalli ríkisins. Auk þess er frágengið að veitt verða framlög vegna veikrar stöðu útsvarsstofnsins, notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar, biðlista eftir þjónustu og breytingakostnaðar.

Fleiri fréttir