Samningar undirritaður vegna 2. Landsmóts UMFÍ 50+

Skrifað var undir samninga vegna 2. Landsmóts UMFÍ 50+ sl. föstudag en mótið verður haldið í Mosfellsbæ dagana 8.-10. júní næsta sumar. 

Samningurinn er á milli Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Kjalarnesþings sem tekur að sér allan undirbúning og framkvæmd mótsins. Mótið er hugsað sem fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá og verður sérstök áhersla lögð á heilsuhreyfingu almennings á meðan mótinu stendur.

Keppnisgreinar á mótinu verðar blak, boccia, bridds, frjálsar íþróttir, hestaíþróttir, knattspyrna, kraftlyftingar, pútt, ringó, sund, þríþraut, línudans, leikfimi dans, sýningar, skák, starfsíþróttir, strandblak og golf.

 

 

 

Fleiri fréttir