Samningur um eflingu náms í Fisktækni á landsbyggðinni

Frá útskrift fisktækna frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Frá útskrift fisktækna frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Í síðastliðinni viku var samstarfssamningur milli atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Fisktækniskóla Íslands um áframhaldandi stuðning við eflingu og uppbyggingu náms í fisktækni undirritaður. Á vef ráðuneytisins segir að það hafi styrkt þetta verkefni frá árinu 2014 og á þessu ári verður grunnnám í fisktækni í boði á Sauðárkróki , Höfn í Hornafirði og Dalvík.

„Meginmarkmið Fisktækniskólans er að vera í samstarfi með öðrum fræðsluaðilum í sjávarbyggðum á Íslandi og bjóða uppá grunnám í Fisktækni sem víðast um landið. Verknám er kennt af heimamönnum en faggreinar eru kenndar á vegum Fisktækniskólans, annaðhvort í staðbundnu námi eða fjarnámi frá Grindavík þar sem höfuðstöðvar skólans eru,“ segir á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

U.þ.b. 100 nemendur eru skráðir í grunnámi Fisktækna og hafa um 60 lokið námi á brautinni og segir Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra samninginn mikilvægan fyrir áframhaldandi vöxt Fisktækninámsins „Það er afar ánægjulegt að geta áfram veitt Fisktækniskólanum stuðning til þess að halda áfram sínu mikilvæga starfi og geta breitt boðskapinn út víðar. Þekking starfsmanna er auður fyrirtækja og hefur það sýnt sig að mikil ánægja er með námið bæði hjá nemendum og fyrirtækjum.“

Fleiri fréttir