Samráð en kannski ekki þverpólitískt
Umdeildasta mál síðasta kjörtímabils var án efa breytingar á stjórn fiskveiða, lög um veiðigjöld og heildarendurskoðun á löggjöf um stjórn fiskveiða. Á þingfundi í dag lagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, fram fyrirspurn um það hvort að þverpólískt samráð yrði haft í endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða, líkt og gert var í tíð fyrri ríkisstjórnar.
Sigurður Ingi, sjávar- og landbúnaðarráðherra, sagði að samráð yrði haft við hagsmunaaðila og nýstofnuð samtök sveitafélaga í sjávarútvegi en fór undan í flæmingi í svörum um þverpólitíska samráð, segir í tilkynningu frá Vinstri grænum.
Hægt er að nálgast umræðurnar HÉR