Samreka á Húnavallaskóla og leikskólann Vallarból
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps hefur samþykkt að stefna að samrekstri á leikskólanum Vallarbóli við Húnavelli og Húnavallaskóla frá haustinu 2011. Munu skólarnir tveir þá vera reknir undir stjórn eins skólastjóra.
Í lögum um leikskóla og grunnskóla frá 1. júlí 2008, er kveðið á um heimild til sveitarfélaga
til að reka saman grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra.
Með þessu er verið að koma til móts við óskir sveitarfélaga, sér í lagi fámennra sveitarfélaga,
þar sem hagræðingamöguleikar felast í því að hafa einn stjórnanda yfir skólum.
Í ályktun frá hreppstjórn segir að með samrekstri skólanna tveggja sé stefna að því að ná fram aukinni skilvirkni í stjórnun og aukinni samþættingu náms, auknum sveigjanleika milli skólastiga og aukinni hagkvæmni í rekstri