Samsstarfssamningur SSNV og ferðamálafélaganna
Í dag var undirritaður í Miðgarði í Skagafirði samstarfssamningur milli Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Ferðamálafélags Vestur Húnavatnssýslu, Ferðamálafélags Austur Húnavatnssýslu og Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði.
Undirbúningur samstarfssamningsins hófst í byrjun árs 2013.
Markmið samningsins eru að:
- skapa virkari og öflugri samstarfsvettvang í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
- skjóta sterkari stoðum undir afkomu og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi vestra
- greina og kortleggja ímynd, vöruframboð og stöðu greinarinnar i landshlutanum í því skyni að leggja grunn að áframhaldandi uppbyggingu og vexti ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
- styðja við vöruþróun og markaðs- og kynningarstarf ferðaþjónustufyrirtækja í því skyni að það verði faglegra og árangursríkara
Samstarfssamningurinn er til tveggja ára og felur í sér að ráðinn verður starfsmaður hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem vinna mun að skilgreindum verkefnum með félagasamtökum á vettvangi ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Jafnframt munu félög í ferðaþjónustu á svæðinu skipa fagráð sem starfa mun náið með starfsmanninum og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.