Samstaða undirbýr kröfugerð

Í kvöld verða haldnir almennir félagsfundir hjá stéttarfélaginu Samstöðu, annars vegar í sal félagsins á Blönduósi og hins vegar í Hlöðunni á Hvammstanga. Hefjast þeir báðir kl 20:00.

Fundarefni er kröfugerð félagsins í kjarasamningum í haust og í tilkynningu frá félaginu eru félagsmenn hvattir til að mæta vel á fundina og segja sína skoðun.

Fleiri fréttir