Samstaða vill afnám verðtryggingar
Stjórn SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar krefst þess að strax verði hafist handa við afnám verðtryggingar. Samhliða fari fram 20% leiðrétting á fasteignalánum til að varna því að fjölmörg heimili fari í þrot á næstu misserum vegna viðvarandi verðbólgu. Almenn niðurfærsla dregur úr útlánatapi banka og Íbúðalánasjóðs og eykur eftirspurn í samfélaginu.
Stjórn SAMSTÖÐU bendir á tvær leiðir til að fjármagna leiðréttinguna. Önnur felst í útgáfu skuldabréfs sem greitt verður niður með skatti á hagnað banka og hin í upptöku Nýkrónu á mismunandi gengi til að færa niður höfuðstól fasteignalána.
Leiðrétting verðtryggðra fasteignalána er ekki gjöf heldur niðurfærsla á tapi skuldsettra heimila vegna óvænts verðbólguskots! Almenn leiðrétting getur ekki kallast tap fjármagnseigenda þar sem hún felur í sér niðurfærslu á ofreiknaðri hækkun á verðmæti eigna þeirra.
Skuldsett heimili geta ekki tekið að sér að fjármagna skuldbindingar lífeyrissjóða. Hætta verður skattlagningu á útgreiðslur úr lífeyrissjóðum og taka upp skatt á inngreiðslur til að fjármagna m.a. lífeyri úr almannatryggingakerfinu sem dugar til framfærslu.
Rannsóknir sýna að sértæk velferðarúrræði eru óvinsæl og ná yfirleitt ekki markmiði sínu. Skv. mati Seðlabankans nutu þeir tekjuháu í meira mæli góðs af sértækri vaxtagreiðslu og 110% leiðinni. Áhrifaríkustu og vinsælustu úrræðin eru fjölþætt úrræði, þ.e. blanda af almennum og sértækum úrræðum.
Stjórn SAMSTÖÐU telur að skuldavandinn verði ekki leystur nema gripið verði til almennrar leiðréttingar til viðbótar við sértæk úrræði ríkisstjórnarinnar sem eru tímafrek og dýr.