Samstarfsverkefni með Rannsóknasetri HÍ
Sveitarfélagið Skagaströnd, Farskóli Norðurlands vestra og Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra hafa komið sér saman um að ráða sameiginlegan starfsmann við Rannsóknarsetrið í 50% starfshlutfall. Þetta kom fram á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar sl. fimmtudag.
„Verkefni starfsmanns verður að sinna ýmsum verkefnum hjá Rannsóknarsetrinu, ljósmyndasafni Skagastrandar, ráðgjöf við Námsstofu og sérstöku átaki á vegum Farskólans,“ segir um starfslýsingu fundargerð.
Jafnframt kom fram á fundinum að Rannsóknarsetrið sé tilbúið til samstarfs en fyrir fundinum lá einnig bréf frá Farskólanum þar sem jákvætt svar er veitt við þátttöku í verkefninu.
Gert er ráð fyrir að kostnaður við verkefnið verði 3,5 millj. króna sem skiptist þannig að Svf. Skagaströnd greiðir 50%, Rannsóknarsetur HÍ 25% og Farskólinn 25%. Áætlaður kostnaður sveitarfélagsins er því 1,8 milljónir.
„Sveitarstjórn ræddi fyrirliggjandi göng og samþykkti síðan samhljóða þátttöku í verkefninu til eins árs með Rannsóknarsetrinu og Farskólanum en taldi ekki forsendur til að auka við kostnað við verkefnið með frekari ráðningum,“ segir loks í fundargerð.