„Samþykkjum aldrei loftlínu“

Á opnum fundi um Blöndulínu 3, sem haldinn var í Varmahlíð í gær, kom skýrt fram að landeigendur myndu aldrei samþykkja lagningu loftlína um lönd sín. „Upplýsingar sem fram komu á fundinum sýndu fram á að Landsnet hefur ítrekað beitt blekkingum í samskiptum sínum við landeigendur og fjölmiðla,“ segir í fréttatilkynningu frá fundinum.

Inn á fundinn barst eftirfarandi ályktun frá hópi landeigenda á Blöndulínu 3:

„Samþykkjum aldrei loftlínu!

Landeigendur á línuleið Blöndulínu 3 ítreka enn og aftur að þeir munu aldrei samþykkja lagningu loftlínu um lönd sín.

Við hvetjum landsmenn til að mótmæla tillögu að kerfisáætlun Landsnets sem gerir ráð fyrir stóriðjulínum frá Blönduvirkjun í vestri um Akureyri til Fljótsdals sem og yfir Sprengisand, þvert á langtímahagsmuni ferðaþjónustu og matvælaframleiðenda.

Í byrjun júní samþykkti Alþingi að breyta raforkulögum þannig að skipulagsvald var tekið af sveitarfélögum. Landeigendur skora á alþingsmenn að leiðrétta mistök sín svo að sveitarfélögin endurheimti skipulagsvaldið frá Landsneti sem nú vinnur, sem aldrei fyrr, að undirbúningi stóriðjulína. Frá 2008 hefur ríkisfyrirtækið Landsnet ítrekað verið staðið að ósannindum. Fyrirtækið heldur uppi áróðri, með aðstoð almannatengla, þar sem kostnaður við lagningu jarðstrengja er ýktur,  um leið og því er haldið fram að sjónræn áhrif loftlína minnki með því einu að færa þær frá vegum landsins.

Lausnin er lagning jarðstrengja.“

Fundarmenn voru sammála um að næsta skref væri að óska eftir fundi með sveitarstjórn til að fara yfir málið.

Fleiri fréttir