Auðlindarentan heim í hérað | Arna Lára Jónsdóttir skrifar

Arna Lára Jónsdóttir. MYND AÐSEND
Arna Lára Jónsdóttir. MYND AÐSEND

Nú á dögunum úthlutaði stjórn Fiskeldissjóðs rúmlega 465 milljónum króna til 15 verkefna í sjö fiskeldissveitarfélögum. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.

Verkefnin sem fengu styrk í ár eru fjölbreytt innviðaverkefni í þessum samfélögum á sviði brunavarna, skóla- og íþróttamannvirkja, vatns- og fráveituverkefni svo dæmi séu tekin.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að innheimta eigi réttlát auðlindagjöld sem renni að hluta til nærsamfélagsins. Úthlutun fiskeldissjóðs er fyrirtaksdæmi um slíkt. Gera þarf breytingar á fyrirkomulagi úthlutunar fiskeldissjóðs í þá átt að sveitarfélögin þurfi ekki að skrifa umsóknir til sjóðsins heldur fái fullt vald yfir því að ákveða sjálf hvaða verkefni eru mikilvæg í þeirra samfélagi.

Við verðum þó að gera meira. Ríkisstjórnin hyggur á frekari aðgerðir í þessum anda. Í því tilliti má nefna áform innviðaráðherra um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga sem eru til umsagnar í samráðsgátt. Þau fjalla um skattlagningu orkumannvirkja og afnám á undanþágu rafveitna frá fasteignamati. Auknar skatttekjur vegna orkumannvirkja munu styrkja fjárhagslega stöðu sveitarfélaga og gera þeim kleift að veita íbúum öfluga þjónustu og byggja upp innviði til framtíðar. Þar er markmiðið að ávinningur vegna auðlindanýtingar, þ.m.t. orkuframleiðslu, geti skilað sér í ríkari mæli til nærsamfélagsins.

Í undirbúningi er jafnframt frumvarp um auðlindagjald í ferðaþjónustu, sem getur verið breytilegt eftir árstíma og staðsetningu, svo hægt sé að undanskilja landsvæði þar sem álag af ferðaþjónustu er lítið. Mikilvægt er að þær tekjur skili sér í uppbyggingu ferðamannastaða, til að styrkja innviði og þjónustu í greininni.

Það er ekki hægt að tala um auðlindagjöld og nærsamfélög án þess að nefna hækkun veiðigjalda sem nú er til umræðu í þinginu. Skýrar fyrirætlanir eru um að þær tekjur sem koma vegna hækkunar veiðigjalda skili sér í bættum innviðum, og nú þegar hefur verið tilkynnt um þriggja milljarða króna aukafjárveitingu í viðhald vega strax á þessu ári og í fjármálaáætlun en gert ráð fyrir sjö milljörðum króna til viðbótar í vegbætur á árinu 2026 og svo aukum við í.

Það skiptir máli hvaða sögu við ætlum að segja. Samfélög verða að fá að njóta auðlinda sinna í ríkari mæli. Mörg þessara svæða hafa glímt við fábreytt atvinnulíf, lélega innviði og þverrandi þjónustu í heimabyggð í gegnum árin.

Með því að nærsamfélög njóti af auðlindum sínum er hægt að byggja upp sterk samfélög með öfluga og samkeppnishæfa innviði um land allt.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Fleiri fréttir