Samvinna um stúlknamótin á Sauðárkróki og Siglufirði
Knattspyrnufélag Tindastóls og KF í Fjallabyggð hafa sameinað krafta sína í mótshaldi fyrir 5. flokk kvenna í knattspyrnu og munu framvegis halda mót fyrir flokkinn til skiptis, í stað þess að bæði félögin séu með mót í þessum aldursflokki á hverju ári, segir á vef Morgunblaðsins.
Á Lummudögum í Skagafirði hefur Tindastóll haldið Landsbankamót fyrir stúlkur í 7.-5. flokki og KF verið með árlegt Pæjumót Sparisjóðsins og Rauðku um miðjan ágúst fyrir sömu flokka.
Í fréttatilkynningu frá mótsstjórn sem mbl.is birti í gær kemur fram að þátttaka stúlkna í 5. flokki á mótunum tveimur hafi dregist saman, m.a. vegna Íslandsmóts 5. flokks og meira framboðs af knattspyrnumótum fyrir 5. flokk.
- Í stað þess að keppast um skráningu liða í 5. flokki kvenna á mótin tvö hafa Landsbankamót Tindastóls og Pæjumót Sparisjóðsins og Rauðku á Siglufirði ákveðið að sameina krafta sína og halda 5. flokks keppni annað hvert ár, þ.e. 2014 á Sauðárkróki og 2015 á Siglufirði. Þetta er gert með hagsmuni þátttökuliða í huga og að gera 5. flokks keppni á mótunum meira spennandi og aðlaðandi fyrir þátttökufélögin, segir í tilkynningunni.
Í ár verður keppni fyrir stúlkur í 5. flokki á Sauðárkróki dagana 28.-29. júní, en Pæjumótið á Siglufirði fyrir stúlkur í 8.-6. flokki.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Landsbankamótið, dagskrá og skráningu á mótið.