Sauða- og ísbjarnaþjófar á Húnavöku

Aðfaranótt sunnudagsins í Húnavöku  var skreytingum stolið í Melabrautinni á Blönduósi en þá hurfu þaðan þrjú lömb og einn ísbjörn. Eitt lambanna fannst á tjaldstæðinu í eftirleit staðarhaldara og er það nú komið heim.

Þetta er annað árið í röð sem Melabrautarfólk verður fyrir skakkaföllum með götuskreytingar um Húnavökuna en í fyrra var stillt upp á götuhorninu, forláta kerlingu, samansettri úr tveimur heyrúllum. Hver rúlla vegur um 500 kg en það stöðvaði ekki skemmdarvargana að velta þeirri skreytingu á hliðina aðfaranótt sunnudagsins og hún þar með eyðilögð.

Íbúar Melabrautar velta því nú fyrir sér hvort þeir skreyti nokkuð fyrir næstu Húnavöku, fyrst verk sem búið er að leggja mikla vinnu og kostnað í eru skemmd eða hreinlega stolið. -Þetta verður þá bara til leiðinda og engin ánægja eftir, nema fyrir þjófa og skemmdarvarga,en skreytingarnar voru ekki ætlaðar þeim, segja íbúarnir sem skora á lamba- og ísbjarnarþjófana að skila því sem þeir stálu.

Fleiri fréttir