Segjum áfram Nei við þjóðnýtingu einkaskulda

Ríkissjóður Íslands er nær gjaldþrota. Allar tekjur Íslendinga myndu vart duga til að greiða skuldir hans. Ef samningar nást við kröfuhafa föllnu bankanna um að leggja ríkissjóði til nokkur hundruð milljarða króna gætu skuldir ríkissjóðs lækkað úr 90% í 70% af landsframleiðslu, segir í tilkynningu frá Andríki en þar er bent á að sumir stjórnmálaflokkar vilja hækka skuldirnar samstundis aftur upp í 90%.

Varað er við því að þeir fjármunir sem ríkið fær hugsanlega frá kröfuhöfum föllnu bankanna verði notaðir til að þjóðnýta hluta (20 – 45%) af verðtryggðum húsnæðisskuldum landsmanna, líkt og sum framboð til Alþingis boða.

„Það vilja þeir gera með því að þjóðnýta skuldir einstaklinga sem í mörgum tilvikum eru vel stæðir og hafa hagnast verulega á íbúðakaupum. Það á að gera í nafni „almennrar

Skuldaleiðréttingar“. Það væri fráleit ráðstöfun á peningum sem ríkissjóður á ekki til.

Það væri veðsetning á börnunum okkar. „Almenn skuldaleiðrétting“ er þjóðnýting einkaskulda,“ segja Andríkismenn og bæta við að Íslendingar hafi í tvígang sagt Nei við þjóðnýtingu einkaskulda í Icesave málinu. „Það var farsæl niðurstaða“.

Fleiri fréttir