Sérfræðingur ráðinn til starfa hjá Þekkingarsetrinu

Þekkingarsetrið á Blönduósi hefur ráðið Jóhönnu E. Pálmadóttur í 50% starf í þrjá mánuði vegna uppbyggingar á listamiðstöð („residency“) fyrir textíllistamenn í Kvennaskólanum. Markmiðið með ráðningu Jóhönnu E. Pálmadóttur er að gera textíllistina sýnilegri með uppbygginu listamiðstöðvar í textíl og efla samstarf viðkomandi stofnana á svæðinu, segir á heimasíðu Þekkingarsetursins.

Í nokkur ár hefur verið starfandi vísir að listamiðstöð á textílsviði á Blönduósi á vegum Textílseturs Íslands. Verkefnið hefur þó aldrei komist mikið lengra en á byrjunarreit, samkvæmt frétt á síðu Þekkingarsetursins en setrið ákvað að taka þátt í frekari uppbyggingu verkefnisins. Hlutverk Þekkingarsetursins er samkvæmt samþykktum m.a. að hafa frumkvæði að rannsókna- og þjónustuverkefnum á sérsviðum setursins sem eru textíll, strandmenning og laxfiskar.

Listmiðstöðvar eru reknar með góðum árangri víða um heim en stofnanir sem þessar bjóða listafólki á ýmsum sviðum upp á starfs- og gistiaðstöðu og einnig eru þær mikilvægur vettvangur umræðu og menningar.Rekstur alþjóðlegu listamiðstöðvarinnar NES á Skagaströnd hefur gengið mjög vel. Margir erlendir listamenn hafa dvalið þar og kynnst sveitarfélaginu sem hefur einnig orðið góð landkynning fyrir norðvesturhluta Íslands,“ segir á heimasíðunni.

Listamiðstöðin verður markaðssett og auglýst bæði innanlands og utan en stefnt er að því að undirbúningi muni ljúka fyrir sumarið.

Fleiri fréttir